Petitions.com

Við fordæmum aðfarir, fangelsun og ofsóknir gegn mæðrum og börnum

L Líf án ofbeldis ·

Við undirrituð fordæmum vinnubrögð íslenska ríkisins í tengslum við ákvarðanir sem leiddu til framsals Eddu Bjarkar Arnardóttur til Noregs og aðför gagnvart sonum hennar. Við krefjumst þess að starfsmaður Barnaverndar Reykjavíkur, Helga Einarsdóttir, verði leyst frá störfum samstundis, og að starfshættir hennar síðustu áratugi verði rannsakaðir. Á sömu vikunni hefur lögregla lýst eftir Eddu Björk og barni Helgu Sifjar eins og um stórglæpafólk sé að ræða, en þessar aðferðir eiga sér engin fordæmi á Íslandi. Við sættum okkur ekki við að verndandi mæður og börn þeirra séu ofsótt og eftirlýst með þessum hætti hér á landi. Við krefjumst þess að stjórnvöld yfirfari vinnubrögð og komi í veg fyrir valdníðslu og óeðlilega samnýtingu valdheimilda milli embætta í málum barna, svo tryggt sé að grundvallar mannréttindi almennra borgara séu virt og hagsmunir barna og vernd þeirra gegn hvers kyns ofbeldi séu ávallt í forgangi.

Screenshot_2023-11-29_at_19.21_.43_1.png

Deildu þessari undirskriftasöfnun

Hjálpaðu þessari undirskriftasöfnun að fá fleiri undirskriftir.

Límdu tengilinn inn í skilaboð og sendu hann til vina sem gætu skrifað undir.

Skannaðu til að skrifa undir

Sýndu vini þínum þennan kóða: hann beinir myndavélinni á símanum sínum að honum og getur skrifað undir strax.




Greidd auglýsing

Petitions.com mun auglýsa þessa undirskriftasöfnun fyrir 3,000 manns.

Lærðu meira...

Veldu kostnaðarhámarkið þitt
Greiðslumáti
PayPalGoogle PayApple PayGreiðslukort

Veldu greiðslumáta til að halda áfram.