Sala íbúða á Hlíf 1, Ísafjarðarbæ.

 Við undirrituð, íbúar Ísafjarðarbæjar, skorum á bæjarstjórn okkar að láta fara fram könnun meðal bæjarbúa á viðhorfi þeirra til sölu íbúða á Hlíf 1.  Þessi sala var ekki rædd í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og bæjarstjórn veit því ekki vilja bæjarbúa í þessu máli.