Petitions.com

Öruggara hverfi

Í Íris Eggersdóttir ·

Kæru íbúar í Tjarnabyggð, 801 Selfoss.

Íbúarfjöldinn fer ört vaxandi og má sjá oft á tíðum, bæði börn og fullorðna ganga um hverfið en þau þurfa að ganga á götunum.

Þó að aksturshraði eigi að vera 30km inn í hverfunum og 50km við aðalveginn í hverfinu, þá eru ekki allir að fara eftir því. Auk þess er birtan frá ljósastaurum slæm þegar fer að rökkva sem skapar enn meiri hættu fyrir gangandi vegfarendur.

Ég tel mig geta sagt fyrir hönd okkar allra að við viljum að börnin okkar sem og okkur sjálf, finnum fyrir öryggi þegar við förum út að ganga/hjóla eða ríða á hest.

Því vil ég safna undirskriftum til að skora á sveitarfélagið Árborg til að skapa öruggara hverfi með því að setja göngustíga í hverfið.

Deildu undirskriftalistanum

Hjálpaðu þessari undirskriftasöfnun að fá fleiri undirskriftir.

Límdu hlekkinn inn í skilaboð og sendu hann til vina sem gætu skrifað undir.




Greidd auglýsing

Petitions.com mun auglýsa þessa undirskriftasöfnun fyrir 3,000 einstaklingum.

Lærðu meira...

Veldu kostnaðarhámarkið þitt
Greiðslumáti
Greiðslumáti