Petitions.com

Klárum dæmið

Hafðu samband við höfund undirskriftarlistans

Gestur#1 Apr 22, 2013, 11:12
Þetta er mjög brýnt.
Gestur#2 Apr 22, 2013, 11:14
Klára ferlið og kjósa svo !!!
Gestur#3 Apr 22, 2013, 11:28
Klárum dæmið
Gestur#4 Apr 22, 2013, 11:39
Það er mikilvægt að hætta þessum barnaskap og fá samninginn í hendurnar. Við getum svo tekið afstöðu út frá staðreyndum þegar samningur er kominn í hús!
Gestur#5 Apr 22, 2013, 11:44
ekki láta ræna okkur réttinum að kjósa um aðild.
Gestur#6 Apr 22, 2013, 11:56
Ég vil ekki að misvitrir stjórnmálamenn ákveði mína framtíð fyrir mig. Ég vil fá að sjá samning og greiða um hann atkvæði.
Gestur#7 Apr 22, 2013, 12:05

Re:

#4: -

Samnigurinn er til og þú getur séð hann. Að ganga inn í ESB er að ganga inn í sama samning og allir aðrir

Gestur#8 Apr 22, 2013, 12:09
Ekki spurning, klára dæmið.
Gestur#9 Apr 22, 2013, 12:12

Nei það er ekki rétt, það er samið sérstaklega um mörg atriði.Re: Re:

Gestur#10 Apr 22, 2013, 12:32
Aðildarviðræðum fylgir aðlögun. Það er heiðarlegt að spyrja hvort við viljum klára aðlögun að ESB og kjósa síðan um að hætta við.

Evrópusambandið er löngu hætt að bjóða upp á pakkaferðir til Brussel til að sjá hvað sé í boði enda liggur fyrir að þeirra hálfu að regluverk sambandsins er ekki umsemjanlegt í neinu sem skiptir máli.

Ástæðan fyrir því að ekkert hefur gengið í fjögur ár í "samningaviðræðum" við ESB er sú að ekki eru til valdheimildir frá alþingi um þá aðlögun sem ESB krefst að fari fram samhliða aðildarviðræðum.

Tími til komin að hætta þessum blekkingarleik og taka upp upplýsta umræðu um ESB áður en áfram verður haldið í aðlögunarferlinu.
Gestur#11 Apr 22, 2013, 12:32
Write a comment...check
Gestur#12 Apr 22, 2013, 12:32
Skrifum undir.
Gestur#13 Apr 22, 2013, 13:00
Það er að mínu mati nauðsynlegt að klára dæmið svo við vitum hvar við stöndum.
Gestur#14 Apr 22, 2013, 13:01
Látum ekki sérhagsmunagæslu skemma fyrir þjóðarvilja.
Gestur#15 Apr 22, 2013, 13:09
Klárum viðræðurnar - tökum svo upplýsta ákvörðun.
Gestur#16 Apr 22, 2013, 13:12
Klárum málið - Þjóðin á skilið val
Gestur#17 Apr 22, 2013, 13:18
Auðvitað á að klára viðræðurnar. Það eru engin rök fyrir öðru.
Gestur#18 Apr 22, 2013, 13:20
Mér finnst líklegt að kostirnir við aðild vegi upp hugsanlega ókosti. Í það minnsta skulum við sjá aðildarsamning og greiða atkvæði um hann, það verður ekki hægt að taka endanlega afstöðu fyrr.
Garðar#19 Apr 22, 2013, 13:35

ESB - viðræðurnar

Klárum ESB-viðræðurnar
Gestur#20 Apr 22, 2013, 13:51
Það er réttur okkar að meiga taka upplýsta ákvörðun
um inngöngu eða ekki. Það er fáranlegt að pólitískir
hagsmunagæslumenn geti komið é veg fyrir að þjóðin
taki sjálf ákvörðun um þetta stórmál.
Gestur#21 Apr 22, 2013, 14:03
Gott framtak hjá ykkur.
Gestur#22 Apr 22, 2013, 14:17
Höldum öllum leiðum opnum og lokum ekki á neitt, metum svo möguleika okkar vel og vandlega. Ekki bara skella hurðum í reiði.
Gestur#23 Apr 22, 2013, 14:26
Látum þjóðina ákveða hvort við viljum þá samninga sem við náum.Ekki einhverja sjálfskipaða vitringa.
Gestur#24 Apr 22, 2013, 14:35
Klárum samninga og kjósum um það sem í hendi er en ekki það sem að við höldum að sé í hendi.
Gestur#25 Apr 22, 2013, 14:36
Skrifum undir, til að komast nær sannleikanum.