Klárum dæmið
Hafðu samband við höfund undirskriftarlistans
Re:
Þetta er einfaldlega ekki rétt, það er alveg klárt að þegar samningur liggur fyrir fær þjóðin að velja já eða nei.
Það er mörgu haldið fram um aðildaferlið og evrópusambandið sem er langt frá því að vera rétt og það eitt er óupplýst umræða og blekkingaleikur. Áróður eins og þegar andstæðingar þess að standa í aðildaviðræðum við Evrópusambandið héldu því fram m.a. í bændablaðinu að íslensk ungmenni myndu þurfa ganga í evrópuherinn sem er ekki einu sinni til. Sumir vilja einfaldlega ekki að þjóðin fái að sjá samninginn því þeir telja það henta illa sínum eigin hagsmunum en vita hinsvegar að samningurinn gæti hentað hagsmunum heildarinnar og eru því hræddir.
https://www.youtube.com/watch?feature=player_embedded&v=1GUTlJqgEYo
Ég er eiginlega búinn að fá nóg af þeim sem ´tíma og ótima fullyrða "þjóðin vilji" þegar þeir eru að lýsa sínum vilja í þessum efnum
Re: Nei það er ekki rétt, það er samið sérstaklega um mörg atriði.Re: Re:
#9: - Nei það er ekki rétt, það er samið sérstaklega um mörg atriði.Re: Re:
Það eina sem samið er um, er hve langan tíma við þurfum til að aðlaga einstök málefni okkar, svo þau lúti aðildar ESB.
Ég bý a ESB svæðinu og það hlægja allir hér, þegar minnst er á samninga við ESB.
Það er enginn samningur í boði, heldur bara hrein og bein aðild eins og fyrir öll önnur aðildarríki. Jafnt fyrir alla.
Ég hef talað við marga hér ytra, frá mörgum aðildarríkjum, og fólk úr mismunandi geira. Því miður er trú almennings í Evrópu, mjög lítil á ESB og ef þeir gætu valið, þá munu þeir velja að fara úr sambandinu!
Margar þjóðir fengu engu um að velja varðandi aðild. Miklar líkur eru að þegar aðildarferlið er búið (samningar hjá sumum) verður ekki aftur snúið og ekkert mark verður tekið á kosningar eins og hefur hent margar þjóðir varðandi ESB kosningar.
Hugsið um ykkur sjálf, ekki halda að aðrir hugsi um ykkur!
Þið getið ekki treyst á ókunnugan til að leysa ykkar mál!
This comment has been removed by the person who wrote it.
Hvaða kostir eru að ganga í ESB?
Hvað er að óttast?
Hver hefur ekki heyrt athugasemdir eins og „ þetta eru ekki aðildarviðræður heldur aðlögun“ Í því sambandi má benda á að Norðmenn hafa tvívegis klárað aðildarviðræður (aðlögun) án þess að ganga í ESB. Ég er ekki að sjá að Norðmenn hafi beðið langvinnt tjón að þessari svokölluðu aðlögun.
Síðan er viðkvæðið „Það verður ekkert samið við Íslendinga um sérákvæði“ eða „Það er alveg ljóst að Íslendingar koma til með að tapa yfirráðum yfir fiskimiðum þjóðarinnar“ Ég ætla ekkert að fullyrða eða geta mér til um hver niðurstaðan verður en ég ætla að leyfa mér að bíða með að taka endanlega afstöðu þar til niðurstaða samningaviðræðna liggur fyrir.
Varðandi sérákvæði og fiskimiðin má benda á ágæta grein sem Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Stjórnmálafræðingur skrifaði í Fréttablaðið í október 2010 sem hann kallar „Hvað er að óttast“ þar segir Gunnar að Norðmenn hafi í raun fengið mjög góðan samning við ESB um fiskimiðin. http://evra.blog.is/blog/evra/day/2010/10/6/
Re: Hvað er að óttast
#46: Skari - Hvað er að óttast
Þú virðist frekar illa upplýstur. ESB gerði ekki kröfu um aðlögun í bæði skiptin þegar Noregur sótti um. Þessu var breytt og nú er gerð krafa um að umsóknarríki geri nauðsynlegar breytingar áður en viðkomandi köflum er lokað í aðildarferlinu. Ekki er skrifað undir samningin og hann settur í þjóðaratkvæði fyrr en öllum köflunum hefur verið lokað.
Átrúnaðargoðið þitt hann Gunnar Hólmsteinn Ársælsson fellur í gryfju byrjenda og nefnir veiðireynslu sem tryggingu fyrir ævarandi rétti Norðmanna til fiskveiða vegna reglunnar um hlutfalslegan stöðugleika. Fyrst er að nefna það að reglan um hlutfallslegan stöðugleika byggir ekki á sáttmála sambandsins og er aðeins til í afleiddri reglugerð sem framkvæmdastjórn ESB getur breytt að eigin geðþótta. Þessi "regla" er þegar orðið að vandamáli (grænbók 2008) þar sem hún gerir ráð fyrir því að lífríkið í sjónum sé óumbreytanlegt. Í þessu sambandi nægir að nefna breytingar á hegðun Makríls sem sækir til norðurs í ætisleit vegna hlýnunar í hafinu.
| This discussion has been closed. |