Petitions.com

Þjóðaratkvæði vegna vopnavæðingar hinnar almennu lögreglu.

Hafðu samband við höfund undirskriftarlistans

Gestur#51 Oct 22, 2014, 09:29

Nei takk, algjör óþarfi.

Það eru til aðrar leiðir.

Gestur#52 Oct 22, 2014, 09:37
Það hlýtur að teljast til tíðinda að vopna almennan lögreglumann og enganvegin réttlætanlegt miðað við nám lögreglumanna á Íslandi og til samanburðar í Noregi þar sem lögreglumenn stunda nám sitt í skóla hersins samhliða herþjónustu undir töluvert strangari aga en á Íslandi og norski herinn fellir út stóran hluta sem ekki stenur undir þeim kröfum sem til þeirra eru gerðar.
Gestur#53 Oct 22, 2014, 09:42

Hvað er svona mikið að breytast við það að lögreglan hafi fengið 150 byssur gefins frá Norðmönnum?

Það er ekkert breytt við vopnalögin og lögreglumenn mega ekki vopnast oftar en áður fyrr. 

Það að fá betri og auðveldari byssur til nota gefins munu ekki gefa lögreglunni enn frekari ástæðu til að vopnast, hvað er þá að breytast?

Gestur#54 Oct 22, 2014, 09:58
Gjörsamleg GEÐVEIKI að vopnavæða lögreglu. Við höfum bjargað okkur hingað til án vopna og ættum að geta það áfram. Hversvegna í óköpunum eru Norðmenn svona ALLT Í EINU að bjóða okkur vopn ???? Mer er bara spurn ???
Gestur#55 Oct 22, 2014, 11:27
Us vs. them hugsunin sundrar þjóðfélögum. Lögreglan á að vinna með fólkinu ekki á móti því.
Gestur#56 Oct 22, 2014, 11:37
Má ekki gerast
Gestur#57 Oct 22, 2014, 12:07
Ef þetta mál er svona eðlilegt og réttlætanlegt, af hverju er þá þessi leynd?
Father Bob#58 Oct 22, 2014, 12:38

ætli þetta verði nýjasta tískubólan?

Gestur#59 Oct 22, 2014, 12:42

Engar byssur takk. Þær hafa aldrei leyst neinn vanda bara valdið sorg og volæði.

Gestur#60 Oct 22, 2014, 13:36
Það er út í hött að þjóðin fái ekkert að segja um þetta. Því verður að breyta!
Gestur#61 Oct 22, 2014, 14:38
meiri völd, meiri spilling, látum ekki spilla landinu okkar
Gestur#62 Oct 22, 2014, 17:29
Á meðan skothríð lögreglunnar á borgara sætir ekki óháðu eftirliti, þá líst mér ekki á að lögð séu fleiri skotvopn í hendur lögreglunnar.
Gestur#63 Oct 22, 2014, 18:11
GUÐ BLESSI ÍSLAND...
Döö#64 Oct 22, 2014, 19:14

Re: Re:

#28: - Re:  

 Hvar fékkstu þessa staðreynd?
Hafa komið til skotbardaga á milli undirheimadólga og annar undirheimadólga?
Hafa skotvopnum verið beytt við frelsissviptingar?
Þó að undirheimarnir hafa nokkra riffla, haglabyssur og svo kannski eina til tvær glock þá vita þeir að það þýðir ekkert að fara að ganntast með það hér á litla Íslandi.

Löggan er ekkert þverhaus sem þarf 50calibera loftvarnarbyssu til að verja sig, peppersrpay, kylfur og kannski tazer er alveg nóg. En fyrir hitt þá höfum við Sérsveitina með flashbangs og MP5.

Gestur#65 Oct 22, 2014, 21:06
á meðan almenningur er ekki að nýta skotvopna til að gera öðrum mein í stórum stíl ættu löggæslumenn heldur ekki að hafa skotvopn undir höndum!
Gestur#66 Oct 23, 2014, 12:40
Mjög góð hugmynd, þar sem að það eru mjög skiptar skoðanir um þetta mál. Leyfum þjóðinni að kjósa eða hendum lýðveldi útum gluggan.
Gestur#67 Oct 23, 2014, 17:32
Sérsveitinn sér um vopnaða glæpamenn.
Gestur#68 Oct 23, 2014, 18:10
Vopnlaus lögregla á Íslandi. Víkingasveitin er til þess gerð að ráða niðurlögum vopnaðra glæpamanna. Til eru líka skotfæri sem ekki deyða sem hægt er að nota í skotvopn s.s. baunapokar í haglabyssur og gúmmíkúlur í skammbyssur.
Gestur#69 Oct 23, 2014, 19:50

Re: Re: Friðarsinnar yfirbugi vopnaða glæpamenn

#36: Guest - Re: Friðarsinnar yfirbugi vopnaða glæpamenn 

 Er semsagt fólk virkilega að ýja að því að við þurfum við bara verðum að vígbúast því að vondi kallinn með túrbaninn er væntanlegur hvað og hvenær til að myrða okkur öll!?!?
Legg til að fólk lesi aðeins meira  heldur en þvæluna sem er búið LJÚGA að fólki um IS,ISIS,ISIL=AL Qaeda!!

Gestur#70 Oct 23, 2014, 19:53

Re: Re: Re: Friðarsinnar yfirbugi vopnaða glæpamenn

#69: - Re: Re: Friðarsinnar yfirbugi vopnaða glæpamenn 

 Væri líka rooooosalega vel þegið að fá nýju stjórnarskránna okkar sem stuðlar að beinna lýðræði, þetta hræðast stjórnmálamenn enda hefur málið verið á ís í fleirri fleirri mánuði!?

Gestur#71 Oct 23, 2014, 19:58

Re:

#53: -  

 Yfirvofandi efnahagshrun er ástæða þessarar vopnavæðingar gott fólk...
Afhverju er landhelgisgæslan að vígbúast?? hhhmmm..jú ætli hún sé ekki hluti af batteríinu sem er verið að koma fyrir til að brjóta niður mótmæli og reyna koma á "reglu" þegar að Austurvöllur brennur ??
Hrunið hér um árið var brandari miðað við það sem koma skal og legg ég til að fólk birgi sig upp af mat sem er með gott geymsluþol ásamt öðrum nauðsynjum til að vera viðbúin þegar að fjörið fer af stað

Gestur#72 Oct 23, 2014, 20:54
Skilum byssunum!
Gestur#73 Oct 23, 2014, 21:53
Hvað er í gangi... 250 MP5 vélbyssur!!! Þetta eru einfaldlega bara DRÁPS-TÆKI. - Það er sjálfsagt að Lögreglan/Lanhelgisgæslan hafi aðgang að skammbyssum eða sambærilegum verkfærum vegna aflífunar dýra vegna slysa o.þ.h. - En 250 stykki vélbyssur!!! Við hverju eru þessar stofnanir eiginlega að búast? - Við höfum þó alltaf Sérsveitina til að höldna sérstök atvik.
Gestur#74 Oct 24, 2014, 04:17

Réttast að glæpamenn fái að vita allt um áætlaða mótstöðu lögreglu

Þetta er nauðsynleg undirskriftarsöfnun. Ég legg til að bætt verði við textann:
"Við leggjum til að Landsspítali verði stoppaður af við Ebóluviðbúnað. Það er ekki búið að sanna að Ebóla komi til landsins. Setja á forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu í þjóðaratkvæði því þjóðin er mun hæfrai en fagmenn til að taka slíkar ákvarðanir. rök í því máli eru t.d. að það hefur mistekist að bjarga fullt af fólki sem var veikt. Einnig er eðlilegt að sjá til þess að við næstu viðkvæmu milliríkjsamninga íslands(sbr. Icesave og Makríldeilu) verði algert gegnsæi tryggt í samningaferlinu með því að hafa öll gögn opin á öllum stigum. Af hverju þessa leynd?"

GH#75 Oct 24, 2014, 12:18

Lögreglan mun hafa byssurnar ofan í læstum kassa inn í bíl og hún mun þurfa sérstakt leyfi til að taka þær upp.. Hver er tilgangurinn? Byssurnar eru þvílíkar drápsvélar og líkjast ekki skammbyssum.. Og fá lögreglumenn eina helgi í æfingu á þetta apparat?? Nú jæja, það gæti ekki meira farið til fjandans hérna! Mun þetta ekki bara ýta undir það að undirheimarnir vopni sig enn þá betur til að geta varist?!