#BurtmeðBirgi
Við undirrituð skorum á Birgi Þórarinsson að segja sig frá þingmennsku.
Ljóst er að Birgir Þórarinsson bauð sig fram í nýliðnum alþingiskosningum undir fölsku flaggi. Hann svindlaði á kjósendum með því að láta kjósa sig fyrir flokk sem hann yfirgaf svo strax að kjöri loknu. Það teljum við vera alvarlega aðför að trausti kjósenda á framboðum og kosningum í lýðræðisríki. Við getum ekki hugsað okkur að það verði látið viðgangast.
#BurtmeðBirgi er þverpólitískur hópur fólks sem ofbýður framkoma þingmannsins í garð kjósenda og aðför hans að rótum lýðræðisins.
Tilkynning frá stjórnanda þessarar vefsíðuVið höfum lokað þessari undirskriftasöfnun og fjarlægt persónuupplýsingar undirritenda.Almenn persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins (GDPR) krefst lögmætrar ástæðu fyrir geymslu persónuupplýsinga og að upplýsingarnar séu geymdar eins stutt og mögulegt er. 837 |