Hvaða kafli er rangur? Þú getur smellt á nokkrar setningar í texta undirskriftasöfnunarinnar og sagt okkur fyrir hverja hvað er rétt. Þetta er valfrjálst.
Setningar sem standa hlið við hlið eru sameinaðar í eina fullyrðingu. Smelltu á setningu aftur til að fjarlægja hana.
Björgum GET og Hugarafli
Áskorun til ríkisstjórnar Íslands.
Undirrituð skora á ríkisstjórn Íslands að tryggja nú þegar forsendur fyrir áframhaldandi starfi GET og Hugarafls í þágu fólks með geðræna erfiðleika og aðstandendur þess. Bjarga þarf mikilvægri endurhæfingu fyrir einstaklinga sem ganga í gengum geðræna erfiðleika og stuðningi við fjölskyldur þeirra. Það er mjög brýnt að hindra að fjöldi einstaklinga missi endurhæfingu sína og að bataferli þeirra verði stefnt í hættu.
Um starf GET, Geðheilsu og eftirfylgdarteymis og Hugarafls, samtaka notenda: Starf GET og Hugarafls byggir á batalíkani á grundvelli valdeflingar og notendasamráðs. Hjá GET og Hugarafli hefur verið lögð áhersla á opna þjónustu sem einstaklingar geta leitað eftir á eigin forsendum. Einnig er lögð áhersla á þjónustan sé sveigjanleg og mæti þörfum hvers og eins til að tryggja auknar líkur á bata. Lykillinn að áragangri er samstarf fagfólks í GET og notenda í Hugarafli, en slíkt samstarf skapar virðisauka sem kemur öllum til góða. Úrræðið er því einstakt vegna samstarfs fagfólks og notenda á jafningjagrunni, þar sem notendaþekking og fagþekking er metin til jafns.
Úrræðið hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar. Erlendis hefur brautryðjendastarf og samstarf GET og Hugarafls, vakið sérstaka athygli. Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna[1] um geðheilbrigðisþjónustu er ítrekað að einstaklingar hafi rétt á að varðveita geðheilbrigði sitt og til að auka batalíkur sé mikilvægt að þeir hafi val um hvar þeir sæki þjónustu og að hún byggi á valdeflingu.
Reynslan hefur sýnt að hugmyndafræði og aðferðir GET henta vel þeim fjölda einstaklinga sem hafa nýtt sér þjónustuna til bata og aukinnar þátttöku í samfélaginu og árangur af starfinu er óumdeildur. Starf GET og Hugarafls er í samræmi við alþjóðlega stefnumótun á sviði geðheilbrigðismála sem er grundvölluð á gagnreyndum rannsóknum á árangri starfs sem byggir á batalíkani og notendasamráði.
[1] Human Rights Council, Thirty-fifth session 6-23 June 2017, Agenda item 3 Promotion and protection of all human rights, civil, political, economic, social and cultural rights, including the right to development.